Djammið á Íslandi

Hrebbz is the name

02.04.2008 17:50:19 / hrefna

stalker???

jájá... það er nú það.... er að fara til dk eftir rétt rúma viku... hel spennt!!! Fékk útborgað í dag... alltaf ánægjulegt hehe.....
Ég er búin að lifa inná facebook.com síðan um helgina... fann þar systur mínar og Austin sem var besti vinur minn þegar ég bjó í Bandaríkjunum.... Er að spá í að senda nokkrar myndir af okkur saman og einhverja sæta kveðju... langar að komast að því hvort hann muni eftir mér líka eða hvort ég sé bara svona weird... hehehe... samt hef ég miklar áhyggjur að virka eins og einhver stalker.... Plís nenniði að kommenta hvað ykkur finnst að ég eigi að gera!!

en já annars var náttla ótrúlega gaman og skoða myndirnar af bæði honum og systrum mínum og já njósna smá bíst ég við hehe...


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 15:40:55 / hrefna

DK :)

jæja... ég er búin að finna leið til að nota frímiðann minn :):)
ég og Sigga ætlum að skella okkur í heimsókn til Jórunnar í DK... mjög spennt fyrir því hehe.... förum 10-13 apríl... verður snilld

en jámm er búin að vera hel dugleg að spara monní og vinna...! Er samt frekar þreytt eftir törnina... Enda ætla ég ekkert að vinna fyrr en í næstu viku.... fá 4 daga frí haha rosa langt eða þannig.....

í gær setti ég svo saman nýja skápinn sem ég var að kaupa mér og er að klára að ganga frá inní herbergi í dag... það er þó miklu lengra verkefni en ég er að fara í gegnum fötin og þá losna ég kannski við að hafa alltaf fatahrúgur um allt útaf plássleysi :)

Svo á eftir er það bara frumsýningin á Stóra planið....

leiters....

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 12:07:23 / hrefna

vinna og peningar

jahá.... enn er ég þurr... langar ekkert svo að fá mér í glas ... örugglega af því ég er svona þreytt... búin að vera að vakna ELDsnemma núna lengi því ég er svo lasin í maganum..... Vakna upp með verki.... fríkí..... kannski bara að fara að skella sér til læknis hehe.... 

Brjálaðar annir hjá mér framundan.... ég er að fara að taka massívar vaktir á sub í kringlu. ártúni og jl...... kvíður svaka fyrir kringlunni.... mikið að gera þar og ég að fara að taka langar vaktir.... veit ekki hvernig það á eftir að fara með tilliti til lappanna á mér.....

Það er einmitt bæklunarlæknir hjá mér á dagskrá á morgun :S langar ekki að díla við meiri slas rugli... komin með nóg!

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 14:30:48 / hrefna

Fyllibyttan sest í helgan stein

jamm nú er það opinbert... ég er hætt að drekka - í bili....
Nú er stefnan að spara peninga og losna við yfirdráttinn sem ég er búin að vera að safna mér upp síðan ég fékk frelsið aftur.... sökkar að drekka ekki eeeenn.... þetta er svosem allt í góðu...  Nú er ég ekkert búin að drekka síðan ég slasaði mig síðast hmmm 2 feb.... og það er bara ekkert eins hræðilegt og ég hélt það yrði...fór meira að segja á árshátíð á föstudaginn og það var alveg ágætt.... reyndar var árshátíðin sjálf svo slöpp að ég var ekki beinlínis í stuði... (hmm kannski eru allar sub árshátíðirnar svona leiðinlegar.... tek bara aldrei eftir því sökum drykkju hehe) En jámm... samt aðalástæðan fyrir edrú mennsku minni er minn sérstaæði hæfileiki til að slasa mig, verst þegar ég er full... .svo ég hreinlega þori ekki að drekka í bili....

Jámm og svo eftir að hafa skoðað reglurnar hjá lín vel þá sé ég að þeir lána ekki nóg til að fara í 4 ára nám úti svo ég VERÐ að fara í Florida í skóla ef ég fer til usa... nema náttla að ég flytji fyrst og búi í 1/2 -1 ár... (ekki viss hve lengi maður þarf að vera til að teljast íbúi....)
Þannig ég er að spá í að fara ekki fyrr en næsta haust -2009.... Og þá verð ég búin að borga allt niður, og safna mér amk 1.4 milljón og get borgað sjálf fyrsta árið án þess að taka sérstakt lán fyrir því eins og flestir gera... því lín borgar eftir önnina þegar þeir eru búnir að fá einkunnirnar manns...... Þannig með því að spara eins og mófó og vinna mikið get ég safnað ennþá meira.... gott að búa hjá mömmu hehehe.... en jámm.... þannig ég er að gæla við það að taka að mér stað sem er lítið að gera og vera á góðum launum þar....... Vandamálið er bara síminn... ígghhh hata símann! En myndi bara fá mér pólskann starfsmann sem vill vinni mikið... þá reddast hlutirnir hehe....



.... drykkjudýrið á eftir að sýna sig aftur.......


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 19:14:09 / hrefna

ferðalag

jemm.... það er ekkert víst að það verði neitt úr páskaferðinni með Brundi svo nú vantar mér sjálfboðaliða til að koma með mér einhvert... hvert sem er annað en orlando þar sem ég er að fara þangað 2 á árinu.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 12:12:39 / hrefna

Fatlafól, AFTUR

hvað er að mér eiginlega!!! ég verð örugglega andsetin af einhverjum gömlum róna sem varð úti þegar hann slasaði sig þarna rétt hjá sub í austurstræti.... Ég er alltaf að slasa mig þarna. fyrst brotna ég þarna hjá dairy queen, svo renn ég harkalega á rassinn togna í fyrrverandi brotnu löpp og fer í bakinu, svo núna um helgina á góðu djammi þá renn ég einhvernvegin og festist í hnéinu. Tilfinningin var eins og þegar maður snýr olboganum niður með beina hendi og reynir að beygja hann í niður sem er náttla ekki hægt..... arg.... núna get ég ekki labbað.. newsflash haha.... Semsagt er löppin föst beigð í svona 120 ° horn og ég get ekki almennilega rétt úr henni né beigt meira... einhver svaka þrýstingur í h nénu.... alveg ótrúlega sárt á lau nóttina og í gær en ekkert svakalega í dag... samt get ég ekkert notað löppina.... úúffff.... ég sem var að spá í að fara ekkert á djammið í gær.... alveg eins og síðast.... var ekkert að nenna út og þá nátla slasa ég mig... aftur.... arg... e´g á þetta ekkert skilið... ætlaði í drykkjupásu... hvað er fokkin málið mar.... ömurlegt.....

hrefna fótalausi auli!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 15:08:42 / hrefna

Malta um páskana??

jáhá... þá er Brandur að plata mann í meira ruglið hehe... nu er í bígerð (vonandi) ferð til Möltu og eru allnokkrir kandidatar sem eru að spá í að koma með..... Ég að sjálfsögðu, Brandur, Áslaug, Helga, Sigga og Gerður.... Snelldar ferð....

Fundum einhver ódýr tilboð á Expedia... og einhvernveginn verð ég að nota miðann minn... Ég get samt bara pantað með 3 vikna fyrirvara eða minna... sem sökkar... því það er þá svo erfitt ða plana ferð sem maður þarf ekki að fara einn!! Ef þessi ferð beilast þá fer ég bara í helgarferð með mömmu... þótt ég væri nú milljón sinnum meira til í að fara í djammferð með vinum hehe.....

En jámm... nú er ég byrjuð að vinna .... ekkert að ráði en samt smá... verð einhvernveginn að borga niður yfirdráttinn og kreditkortin haha.... eyðslan fór alveg í rugl eftir að e´g losnaði úr gifsinu mar... og náttla ferðin til London... úps :S

hehe

Svo er ég að fara til Orlando 27maí-14 júní... og akkúrat á sama tíma er Margrét í spöng og fjölskylda að fara... ætla meira að segja í siglingu á sama tímabili og við og jafn lengi... hmmm spurning... væri geggjað að vera öllsaman í siglingu..-meira að gera á skipinu og skemmtilegri dagsferðir og þannig.....

Svo hin ferðin sem við erum búnar að bóka okkur í er 20 ágúst til 6 september.... þá er stefnan aftur á Orlando hehe.... og í þetta skiptið með allri fjölskyldunni!!! 15 manns takk fyrir.... þetta verður rugll!! milljón börn og ég veit ekki hvað... úfff... en samt algjör snilld því við mamma getum náttla alltaf stungið bara af og skroppið einhvert... south beach, key west eða eitthvað...... ætlum líka að skoða einhverja skóla.... kemur samt bara í ljós....

Jemm spurning hvort ég geti ráðið við mig og sleppt því að fara í ferð inná milli ameríkuferðanna???

leiters

ps stefna á almennilegt djamm næstu helgi, eins gott að það hætti að snjóa...!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 15:31:36 / hrefna

hrakfallabálkur ársins.... engin samkeppni

jæja já.... núna sit ég í vinnunni tognuð á báðm fótum að reyna ða harka af mér... ég er mesti auli ever... ég hef engann til að toppa nema sjálfa mig því ég set markið svooooooo hátt....

Þri er ég að labba í bilinn úr skólanum og að tala við Helgu í símann... um leið og ég játa að vinna fyrir hana það kvöld renn e´g svoleiðis á rassinn og verð rennblaut... rosa fyndið af því vonda löppin var í lagi... þá er me´r sama haha

svo eftir vinnu... þá er ég ekki komin nema 10 skref út úr húsi að ég renn á bílastæðinu beint á rassinn og ofaní drullupollaslappógeð.... ég varð svooo blaut að nærurnar mínar voru meira að segja gráar (voru bleikar!!)... þar fékk ég  svakasár á ristina á góðu löppinni og hálftognaði... ógó illt!!

j´ja já.... svo á miðvikudaginn fer ég uppí austurstræti eftir skóla og flíg svo harkalega á rassinn/bakið á flísunum og misstíg mig illilega á "brotna" fætinum..... meiddi mig ógeðslega mikið í bakinu og ökklanum.... sem betur fer... en þá á ég eftir að vinna í alveg 2 tíma eða eitthvað.. læt mig hafa það.... en smám saman læsist ég meira og meira í bakinu... þegar ég klára vinnuna get ég varla labbað.... fer heim með herkjum og leggst bara fyrir..... reyni að gera ýmsar teygjur sem hafa hjálpað áður og eitthvað.... vandamálið var að ég var að fara á frumsýninguna á Brúðgumanum þannig ég var að reyna ða flýta mér að ná þessu úr mér..... tókst að lokum en náttla ekki alveg..... í lok dags var ég aftur að fara í bakinu og að deyja í báðum fótum....

=ÖMURLEGT

Em jámm annars er ég frekar ánægð með brúðgumann... ég var ekkert of spennt þegar ég heyrði titilinn... en ekki láta hann blekkja.... þetta er þrælfyndin mynd og ég mæli með að fólk fari að sjá hana.... við verðum nú að styrkja íslenskann iðnað og þessi mynd er frábær skemmtun. Samt held ég að hún höfði meira til eldra fólks en er samt skemmtileg fyrir yngra fólkið því hún er bullandi af húmor...

 

leiters... ætla ða fara að halda áfram að vinna....


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 20:46:07 / hrefna

jæja já

kominn tími til að skrifa eitthvað kannski....

góð helgi.... fór í sextugsafmæli til Ellu.... Svo í bæinn með Huggu :):) tók fullt af myndum að ókunnugu fólki haha.... húkkaði mér far hjá ókunnugum á jeppa á sumardekkjum hmmm8|

Sunnudagurinn var ekki góður..... þyyyynnnnkkkkaaaaaa

Svo byrjaði skólinn í dag.... Lýst ágætlega á þetta bara.... Náttla bara lúxus að þurfa ekki að mæta fyrr en 1 á mánudögum..... Nokkuð bjartsýn á þetta bara.... ekkert rugl eins og í fyrra...

Annars gekk mér gegt vel í fjarnáminu.... Fékk 9 í ísl 503, 9 í ensku 603, en bara 7 í lan 103 og 6 í jar 113 :S

Ætla að massa þetta þessa önn......

Svo er bara að finna út við hvað ég á að vinna með skólanum.... hef ekki gvuðmund... en get ekki verið á Subway eða þessháttar starfi... fótavesen.... á ekkert eftir að lagast....

En jámm..... ætla kannski að skrifa inn meira seinna....


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:24:17 / hrefna

London baby :)

jább... ég gerði það... ég er rugluð.... ég veit ég veit....

Ég og Brandur keyptum okkur miða til London 15-18 nóv.... omg... ég á engann pening.... ég er að láta mömmu borga viðgerðina á bílnum mínum.... foooookkkk..... hún á eftri að tjúllast.... þori ekki fyrir mitt litla líf að segja henni frá því.....

En ég get ekki beðið.....verð bara að vinna eins og mófó í nóv... amk á virku dögunum hehe.... og nota visa....... hmmmm jæja.....

 

Besta að fara að læra dóra fokkin Lax

 

Ef einhver vill joina erum við endilega til í fleiri... the more the merrier....


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 13:39:44 / hrefna

Dublin??

jæja... styttist í að ég geti farið að gera eitthvað.. ekki það að ég hafi tíma fyrir það.. ég er að drukna í skóladóti!!! Skila endalaust af verkefnum núna... hef engann tíma... er reyndar með samviskubit yfir að vera að skrifa þetta... En jámm... Brandur er eins og vanalega að freista mín með utanlandsferð... ræð ekki við mig.... laaaaannnnggggaaaar svoooo.... Nú er það Dublin 15-18 nóv... reyndar var það ég sem rakst á það og gerði þau " mistök " að segja honum frá.... Það er bara svooo gaman í Dublin.. en þá sérstaklega að ferðast... Ég hef reyndar komið til Dublin áður með Helenu en það var frábært!! Rosa sætir strákar og alles.... Reyndar ef maður fer með strák er maður ekkert að fara að lenda á séns eða þannig... :$ Svo það er náttla ókostur við að fara með Brand.. En á móti djömmum ivð svo vel saman... það er alltaf hrikalega gaman hjá okkur :)

EEEEnnnnn ég á enga peninga.. er ekki búin að vinna í 2 mánuði.... veit ekki hvað ég á að gera með það.... meina ég get alveg komið mér í plús þótt ég fari í ferðina ef ég vinn eins og mófó í nóv... en ég veit ekkert hvort ég geti það í rauninni.... Ég er búin að vera að dunda mér við að stíga í fótinn varlega og það gengur ágætlega en þegar ég ætla að taka skref... þá beiti ég mér eitthvað vitlaust og er eins og fáviti.. þar að auki má ég ekki vera að stíga... svo kannski það er ekki að marka... Ég veit að ég get fengið eins mikla vinnu á Sub og ég vil... en það er náttla kreisí að gera í skolanum.... æji vá...

Svo er það líka það að mamma er að borga fyrir viðgerð á bílnum mínum og svo sting ég bara af til útlanda... það er ekki sanngjarnt!! What to do????

 

ps það var fjör á lau hjá Áslaugu.... típískt ég að fá mér aðeins í aðra tána með þessu liði... geri það alltaf.....

 

leiters...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 18:46:20 / hrefna

bööömmmmmeeeeerrr....!!!!!!!!!!!!

Oh..... Það sökkar að ristarbrotna.... arrrrrgggg......

Ég losnaði úr gifsinu áðan.... Frábært alveg.... Má ekkert stíga í löppina í 2 vikur... Það er víst ekki fullkomlega gróið beinið svo það má enginn þungi fara á... Eftir 2 vikur má ég svo gera eins mikið og er ekki vont... Hmmm....

Annars var fokk fyndið þegar gifsið var tekið af mér.... Ég er loðnari en versti karlmaður hehehe... Með löng svört hár.... Hlakka til að fara í bað að raka.... hahah hef ALDREI séð annað eins..... Örið er samt fínt.. virðist vera beint og allt... Jafn stórt og lilliputtiminn..... ekki svo stórt neitt... Hins vegar sýndi læknirinn mér röntgenmynd síðan eftir aðgerðina og skrúfan er risastór... Steinhissa alveg...Vona að hún verði ekki vesen, meika ekki að fara aftur í aðgerð.... Ég fíla engann veginn morfín... fíla að vera sársaukalaus en ekki hvað ég verð skrítin i hausnum á morfíni..... Ágætis trygging fyrir að ég detti ekki í dópið.... hehe

Ég sem var orðin svo hrikalega spennt fyrir helginni.... ætlaði svoleiðis að djamma!! Við Áslaug ætluðum meira ða segja að vera með eyru, skott og veiðihár  í tilefni halloween..... ARRRGGG Hefði verið auðveldara að vera í gifsi þótt það verði geggjað að fara í venjulegt bað.... ahhhhhhh

Jæja... nóg af væli....

leiters....

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 18:23:30 / hrefna

Furðulegt

jáha... Róleg en skrítin helgi..

Fékk fleiri furðuleg sms á laugardaginn... Í þetta skipti frá fyrrverandi.... Hvað er málið... Ég bara skil þetta ekki..... Einhver seg mér hvað fokking málið er.... Uppúr þurru... Hef ekki heyrt múkk í honum í meira en 1 og hálft ár.... Veit ekki hvort hann viti af þessari síðu en só mér er alveg sama þótt ég móðg hann eða eitthvað.. Ég allavegana svaraði alveg en hann var greinilega fullur og hafði ekkert raunverulega að segja.... Ég var frekar köld enda er ég alveg köld gagnvart honum.... Myndi aldrei þá meina ég ALDREI taka hann aftur... Gæti ekki orðið nógu desperat til þess... það endaði ekki vel....

Sá sem sendi mér síðustu helgi hins vegar... það er áhugavert..... Það er líka komnir 16 mánuðir síðan ég sá hann... reyndar fékk ég sms frá honum fyrr á árinu en það varð aldrei neitt úr því... veit ekki hvað mér finnst um hann því hann er svo feiminn þegar hann er edrú.... En í glasi... nó prob... það var þess vegna sem ég hætti eiginlega að umgangast hann á sínum tíma......

En já... bara að venta..... Líklega óviðeigandi að skrifa þetta hér inná.... en mér er skítsama....

Aðalmálið hjá mér þessa dagana er samt að ég er að fara í endurskoðun á miðvikudaginn.... Vonandi losna ég úr gifsinu... Það er allavegana eins gott að ég losni... Ég fer örugglega að grenja í marga daga ef ég losna ekki..... OMG ég meika ekki að vera lengur... Svo þar að auki ÆTLA ég á djammið um helgina... alveg massa djamm.... æji ég verð vitlaus ef það gengur ekki upp....

 

ps.. ég sé að það er einhver að skoða síðuna.... En enginn kommentar svo ef það breytist ekki ætla ég að setja lykilorð á síðuna.... Þá geri ég ráð fyrir ða það séu bara einhverjir ókunnir að skoða... Svo kommenta plís...


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 19:01:45 / hrefna

Ekkert

Mikið svaðalega er Sjálfstætt fólk leiðinleg bók..... Gengur ekkert að lesa hana...

Fór í bío aftur í gær... Fór með Helenu að sjá Chuck and Larry.... Hún er ágæt... Ekki besta mynd í heimi en mjög fyndin.... Hló amk alveg fokk hátt....

En já... Var að taka eftir smsi frá því síðustu helgi í símanum mínum... Sökkar að missa af hlutum svona... og Geta ekki brugðist við...!

En já... fann skemmtilega síðu aftur... ef einhver er að skoða endilega taka próf sem ég var að dunda mér við að gera.... ekkert erfiðar spurningar skomm....

http://www.quizyourfriends.com/quizpage.php?quizname=071020145418-688754&

aníveis.... hef ekkert að segja meira sem má segja frá amk....

 

leiters....


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 17:01:02 / hrefna

Hver er að skoða??

jæja... hef nú ekkert sérstakt að segja í dag.... Er búin að vera að pæla í því hverjir það eru sem kíkja á þessa síðu?? Vinsamlegast kommenta eða skrifa í gestabók....

Annars fór ég í bíó með Brand á þriðjudaginn... Fórum á The Kingdom sem kom mér skemmtilega á óvart.. Hún er mjög skemmtileg og hélt mér spenntri allan tímann. Ég sem þoli ekki hryðjuverka, stríðs eða stjórnmálalegar myndir...

Allavegana þá var ég algjör hetja og kleif tröppurnar inní salinn á methraða... Hefði farið lítið hraðar með helbrigða fætur... Allavegana þá var voðalega spes að vera svona fatlafól í kringum fólk... A vissu leyti er svakalega gott að vita að fólk riðst ekki framhjá fólki á hækjum en öllu má ofgera. Allstaðar sem ég labbaði flúði fólk eins langt útí kant og það komst... Mér leið massa kjánalega!! Það er alveg einhver millivegur frá því að labba utaní fólk og að læðast meðfram veggjum og stara á mann.....

Það eru semsagt 6 dagar í að ég fari í endurskoðun uppá spítala og vonandi fæ ég að losna við gifsið.... Mér finnst alveg eins og ég sé orðin góð... Farin að stíga meira að segja í fótinn og finn ekki neitt fyrir því......

Þá er það bara að bíða og sjá til.... Ef ég losna þá verður djammað villt þá helgi :):):):):):):):):)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Hugga ísl
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1392 dögum
Hugga og Ryan til landsins
Fyrsta próf
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1379 dögum
Fyrsta lokaprófið mitt
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1368 dögum
síðasta lokapróf
Til usa vor
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1354 dögum
ég, Mamma og ólöf+fjölskylda til USA
afmmli mitt
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1333 dögum
Ég 22 ára hundgömul
til usa
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1269 dögum
Til USA með Fjölskyldunni...
Jólin :)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1143 dögum
Jólin :)
áramót
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1136 dögum
Áramót... sjibbí